28.5.03

Góða kvöldið
þá er komið að því!! Öllum verkefnum lokið og ég voða ánægð með afraksturinn. Ég hef reyndar fundist svolítið óljóst með öll verkefnin þ.e. ég vona að ég hafi skilað öllu sem ég átti að skila. Það eina sem mér tókst bara ekki þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og bréfaskriftir það var að fá þennan blogger auglýsingalausan. Ég er búin að borga tvisvar ca. 1100 kr og senda nokkur bréf en ekkert gerist. Ég sagði Salvöru frá þessu en hef reyndar ekkert heyrt frá henni og vona bara að þetta eigi ekki eftir að draga mig mikið niður!!! En s.s. tel mig búna með öll verkefni og er marg búin að prófa allar tengingar og allt virðist virka.
Ég segi því bara takk fyrir önnina þetta hefur verið mjög gagnlegt fyrir mig og ég tel að ég eigi eftir að nota mikið það sem ég hef lært og er þá ekki tilganginum náð eða hvað???
Skilasíða
Kær kveðja og takk fyrir mig Auður

26.5.03

Halló
Ég hef verið svo upptekin við verkefnin að ég hef bara alveg gleymt bloggernum. Þetta er allt að smella saman. Lokaverkefnið nánast tilbúið, vefleiðangurinn er eftir að fá útlitsuppliftingu og kennsluhugmyndin komin vel á veg. Þá er það bara að standa sig á lokasprettinum og ég stefni að því að skila á miðvikudag.... fyrir 12 á miðnætti.... Kveðja Auður

19.5.03

Halló
Lokahnikkurinn byrfjar ekki vel! Þurfti óvænt að vera á hlaupum um bæinn í dag. Og þegar ég settist við tölvuna í kvöld þurfti líklega að brjótast í gegn ný tönn hjá Hildi og ég hef ekkert getað gert annað en stinga snuði og kæla góminn......... púff vonum að morgundagurinn verði betri. Nú er klukkan orðin margt og ég er alveg uppgefinn heilinn starfar ekki á réttum hraða fyrir frumlegar hugsanir. Kær kveðja Auður

18.5.03

Halló
Það hefur lítið gerst um helgina hjá mér en búin að fá mikla pössun í næstu viku og nú er bara að setja í gang fyrir lokasprettinn. Stefnan sett á að allt sé tilbúið á mánudag eða kannski þriðjudag í næstu viku var það ekki annars í lagi til 1. júní?????
Kveðja Auður

14.5.03

Jæja Þetta þokast!! Ég var að finna klippa og líma og breyta og bæta í gær og framhald í dag. Ég lofa að fara að setja þetta út á netið en hef átt í erfiðleikum með það þannig að ég var að reyna að geyma það þanngað til meira er tilbúið. Annars gegnur þetta nokkuð vel og maður gleymir sér alveg í þessu. Verst að þetta er "bara" ca. 40 stunda vinna!!!! Prinsessurnar eru hressar og kátar og gefa ekkert eftir í rólóferðum!!!

12.5.03

Halló
Var að vinna í síðunni þ.e. lokaverkefninu ætla þó ekki að setja það út á netið alveg strax þetta er allt í vinnslu. Sett inn svolítið að efni er búin að setja tengla og næst á dagskrá er að fá merki DV, Fræðslumiðstöðvar R. og Moggans inn á síðuna. Meira síðar Kveðja Auður

8.5.03

Halló
Þó svo að lítið sjáist er ég eitthvað að reyna að bralla í laumi. Ég hef aðeins verið að spá í hvernig ég eigi að setja fram það efni sem ég á og hef líka verið að flokka það svolítið. Annars allt í besta lagi. Ég að fara í orlofsferð.. ........... þ.e. saumaklúbburinn að fara í sumarbústað um helgina maka og barnalausar. Ég var nú samt að spá í að lauma 3 aðilanum með þ.e. tölvunni. Svo get ég kannski laumast inn í herbergi og þóst leggja mig en verið að vinna í síðunni. Litlurnar voru í 18 mánaðaskoðun í dag og voru ekki hrifnar af lækninum. Það var ekki nóg með að hann þyrfti að glápa í eyrun, munninn og allt það heldur gerði sprautan nú alveg útslagið. Þegar þær fæddust munaði 300g á þeim og síðan hefur alltaf munað 300 - 400 g á þeim og það var eins núna það munaði 400 g og 0,5 cm . kær kveðja og meira eftir orlofshelgina miklu........